Hoppa yfir valmynd
19. janúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Ræddi mikilvægi sögustaða og menningararfs í ferðaþjónustu á Íslandi

Ráðherra segir að markmiðið sé að Ísland verði áfangastaður á heimsmælikvarða. - mynd

Vægi sögustaða og menningararfs í ferðaþjónustu á Íslandi var rætt á sérstöku málþingi í Ferðaþjónustuvikunni 2024. Málþingið fór fram í Eddu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir sagði þar mikilvægi menningar fyrir ferðaþjónustu vera óumdeilt, en ráðuneyti menningar- og viðskipta er einnig ráðuneyti ferðamála.

„Þó að náttúruperlur okkar leiki ótvírætt stærsta hlutverkið sem aðdráttarafl fyrir erlenda ferðamenn, sýna kannanir að saga og menning fara sífellt vaxandi sem ástæða komu ferðamanna til landsins, en samkvæmt landamærakönnun Ferðamálastofu nefna um 55% ferðamanna sögu og menningu sem ástæðu heimsóknar,“ sagði ráðherra meðal annars í ávarpi sínu á málþinginu.

Ráðherra sagði að mörg tækifæri væru enn vannýtt á sviði menningar- og söguferðaþjónustu. Hyggst hún á vorþingi leggja fram þingsályktun  um uppbyggingu sögustaða hér á landi.

Markmið þingsályktunartillögunnar er að styðja enn frekar við uppbyggingu menningarferðaþjónustu á slíkum stöðum og móta slíkum áherslustöðum viðeigandi umgjörð. Með uppbyggingu sögustaða er markmiðið að standa vörð um staðinn sjálfan og þá sögu sem hann hefur að segja og miðla henni til komandi kynslóða.

„Með því að efla og festa sögustaði í sessi sem áhugaverða áfangastaði fyrir ferðamenn, jafnt innlenda sem erlenda, gefst einstakt tækifæri til að efla og auka þekkingu og miðlun um sögu og menningu landsins,“ sagði ráðherra í ávarpinu.

Úrræði stjórnvalda, á borð við Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og Landsáætlun um uppbyggingu innviða, hafa varið um einum og hálfum milljarði króna á ári undanfarin ár í uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum m.a. á fjölmörgum sögu- og minjastöðum um landið.

Sjö starfshópar á vegum ráðuneytisins leggja nú lokahönd á tillögur að aðgerðum í aðgerðaáætlun fyrir ferðaþjónustustefnu til 2030, þar af einn með það hlutverk að fjalla um menningarferðaþjónustu í sinni breiðustu mynd. Ráðherra mun leggja stefnuna og aðgerðaáætlunina fyrir Alþingi í formi tillögu til þingsályktunar á vorþingi.

„Það er markmið okkar Ísland verði í fremstu röð þegar kemur að fagmennsku og gæðum, að Ísland verði áfangastaður sem er þekktur fyrir góða gestrisni, trausta innviði og upplifun á heimsmælikvarða.“

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum