Hoppa yfir valmynd
13. febrúar 2024 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Samtal um aðgerðaáætlun í ferðamálum til 2030

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra býður til opinna umræðu- og kynningarfunda um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030. Fundirnir eru haldnir víðs vegar á landinu og má sjá dagskrá hér fyrir neðan. Fyrstu viðkomustaðir í hringferð ráðherra eru Akureyri og Sauðárkrókur.

Fyrstu drög að aðgerðaáætlun ferðamálastefnu 2030 voru unnin í víðtæku samráði stjórnvalda við fjölda hagaðila. Drögin eru byggð á vinnu sjö starfshópa og stýrihóps og voru birt í samráðsgátt stjórnvalda í nóvember á síðasta ári.

Ferðaþjónustuaðilar og áhugasöm um þróun ferðaþjónustunnar hjartanlega velkomin!

Vinsamlegast skráðu mætingu hér.

Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum:

• 14. febrúar kl. 14:00 Akureyri (Hof)
• 15. febrúar kl. 15:00 á Sauðárkróki (Félagsheimilið Ljósheimar)
• 21. febrúar á Suðurlandi kl. 14:00 (Hótel Hvolsvöllur)
• 22. febrúar kl. 14:00 á Egilsstöðum (Hótel Hérað)
• 27. febrúar í Borgarnesi kl. 14:00 (Landnámssetrið)
• 28. febrúar kl. 15:00 í Reykjavík, móttaka á eftir (Hilton Reykjavík Nordica)
• 4. mars kl. 13:00 á Vestfjörðum (Edinborgarhúsið)
• 5. mars kl. 13:00 í Reykjanesbæ (Hljómahöll)
• 6. mars á Höfn í Hornafirði (Nýheimar)

Sjá nánar á Ferðamálastefna.is

Drög að aðgerðaáætlun í ferðamálum

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum