H. ETS: Flug og iðnaður |
Lýsing
H.3 Þátttaka í alþjóðlegu kerfi um samdrátt í losun frá flugi. Aðgerðin felur í sér þátttöku Íslands í nýju alþjóðlegu kerfi um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi.Staða
Aðgerðin er í framkvæmd.
Ísland tekur nú þátt í alþjóðlegu kerfi um samdrátt í losun frá flugi (CORSIA-kerfinu) en í tengslum við endurskoðun ETS-kerfisins eru tillögur að frekari útfærslu á tengingunni milli ETS og CORSIA. Það er því viðbúið að þessi aðgerð verið endurskoðuð þegar endanleg útfærsla á uppfærðu ETS-kerfi liggur fyrir.
Í upphafi er um sjálfviljuga þátttöku ríkja að ræða og hefur Ísland tekið þátt í kerfinu frá byrjun. Flugrekendur á Íslandi safna gögnum í samræmi við reglur kerfisins. Kerfið er innleitt í Evrópu í gegnum breytingar á regluverki ETS-kerfisins sem skýrir af hverju aðgerðin tilheyrir þessum flokki aðgerðaáætlunarinnar.
Nú þegar er búið að innleiða í íslensk lög þrjár reglugerðir ESB um vöktunarskyldu flugrekenda vegna alþjóðaflugs samkvæmt CORSIA-kerfinu.
Framkvæmd
Ísland tekur þátt í nýju alþjóðlegu kerfi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um losun gróðurhúsalofttegunda frá flugi, CORSIA (e. Carbon Offsetting and Reduction Scheme for International Aviation). CORSIA hefur það að markmiði að ná fram kolefnishlutlausum vexti í alþjóðaflugi frá og með árinu 2020 með kolefnisjöfnun og losun koltvísýrings í gegnum sérstök verkefnavottorð. Umfang CORSIA nær til flugrekenda sem losa meira en 10.000 tonn af koltvísýringi frá alþjóðaflugi með loftförum með hámarksflugtaksmassa yfir 5.700 kg.
CORSIA verður innleitt í nokkrum skrefum. Í upphafi er um að ræða sjálfviljuga þátttöku og Ísland tekur þátt í kerfinu frá byrjun ásamt öllum öðrum ríkjum í samtökum evrópskra flugmálayfirvalda (ECAC). Fyrst var tveggja ára tímabil á milli 2019 og 2020 þar sem grunnlosun var ákvörðuð og er öll losun umfram hana losunin sem telst til kolefnisjöfnunar í framhaldinu. Síðan taka við tvö þriggja ára tímabil (2021-2023 og 2024-2026) þar sem lönd geta sjálfviljug tekið þátt áður en þátttakan verður bindandi. Í janúar 2022 höfðu 107 ríki skuldbundið sig til þátttöku af frjálsum vilja fyrir árin 2021-2026. Í þessum ríkjum er meira en 76% allrar alþjóðlegrar flugumferðar. Frá ársbyrjun 2019 hafa flugrekendur í umræddum ríkjum vaktað losun CO2 frá alþjóðaflugi.
CORSIA-kerfið verður innleitt hér á landi í gegnum evrópska viðskiptakerfið með losunarheimildir (ETS) með breytingum á lögum um loftslagsmál. Umhverfis- og auðlindaráðherra mælti fyrir breytingunum á vorþingi 2020.
Ábyrgð
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Árangursmælikvarði
Innleiðingu er lokið á þeim ESB-reglugerðum tengdum CORSIA-kerfinu sem hafa tekið gildi.
Áhrif á ríkissjóð
Ekki er gert ráð fyrir auknum kostnaði fyrir ríkissjóð vegna innleiðingar CORSIA.
Áhrif á losun
Samkvæmt mati Alþjóðaflugmálastofnunarinnar munu flugrekendur í alþjóðaflugi þurfa að kolefnisbinda 2,5 milljarða tonna af CO2 til að ná kolefnishlutlausum vexti milli áranna 2021-2035.